Lífið í EdEn
Hversu vel þekkir þú mig?
14.11.2006 20:41:34 / hrahel

14. nóvember

The one who makes you cry is not worth your

tears!!!


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2006 11:12:43 / hrahel

Myndir

haha jæja ég er nú svaka öflugur bloggari. en margt búið að gerast síðasta mánuðinn og ég hef enga nennu til að skrifa það... hér koma bara nokkrar myndir sem sýna nokkra viðburði.. eins og smá frá oktoberfest,, afmælinu mínu, og e-u djammi hér og þar...

www.fotki.com/hrahel22

Knulliknull

Raven


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 22:47:44 / hrahel

Photos...

jæja þá eru komnar inn nýjar myndir frá ágúst og september!!! t.d frá útilegu í þrastarlundi, lokahófi ÍR, e-r djamm myndir, ÍR- ÞÓR/KA og fleira

www.fotki.com/hrahel20

enjoy

knús og kram.. knulliknull(nýtt orð sem ég bjó til.. mjög svo grúví:))

Raven


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.09.2006 10:01:05 / hrahel

Holy moly!!!

Jæja, er þá ekki kominn tími á eins og nokkrar línur???

Það er búið að vera svo svakalega mikið að gera hjá mér síðustu vikur að það er alveg frábært... ég hef farið að skemmta mér alveg nokkrum sinnum;) og kynnst FRÁBÆRU  fólki... ég hef verið afskaplega lífsglöð og hamingjusöm síðustu daga.. en núna er smá lægð í gangi..:( haha ég veit ekki afhverju.. Ása, veist þú það?

Ég átti eitt allra fyndnasta og skemmtielgasta samtal í heimi síðust helgi og ég er ennþá að hlæja þegar ég hugsa um það... algjör snilld. I loooooooove it:)

En skólinn er bara byrjaður á fullu og sökum anna í social-lífinu hef ég ekki alveg einbeitt mér 100% að náminu,... en þetta kemur allt saman, maður þarf bara að finna gírinn, hann er þarna e-s staðar.. bara soldið ryðgaður.

ÍR-stelpurnar komnar upp um deild.. ekkert smá flott hjá þeim... ég viðurkenni það fúslega að ég hafði enga trú á því að þetta væri hægt.. ekki í nánust framtíð allavega... svo tókst þeim þetta bara í sumar... djöfulli flott. Svo var lokahófið síðasta laugardag og við skemmtum okkur mjög vel.. svo tók bara bærinn við og ekki var það neitt síðra:) oooohhhhhh bööööögggggg

Ég er semsagt á lífi... ennþá og hef bara verið of busy til að skrifa e-ð hingað inn... en látið mig vita ef þið eruð ennþá að lesa þetta. Kannski hendi ég inn nýjum myndum fljótlega.... who knows, eða kannski vil ég bara eiga þær fyrir mig... þær eru margar hverjar svo yfirnáttúruelga fallegar að ég vil helst ekkert deila þeim með of mörgum;)

knús og kram... knulliknull

Raven

það er dama hérna á bókasafninu með klassíska tónlist í eyrunum.. MJÖG hátt stillta.. og hún er að spila adagio í öllu þess veldi, guð ég bara tárast....hahahahhaha


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.08.2006 11:43:50 / hrahel

Komin heim!!

jæja, þá er ég komin heim, til að vera. Ferðalagið gekk vonum framar.. ekkert vesen með farangurinn og allt komst heim í góðu lagi. 12 mánuðir bara flugu áfram og núna tekur bara skóli við :)

fyrir áhugasama að þá er e´g bara með gamla íslenska númerið mitt.

knús og kram

Raven


» 9 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 13:11:26 / hrahel

Helvítis terroristar!!

Dagurinn sem ég hlakkaði mest til, er núna dagurinn sem ég kvíði mest fyrir. Útaf þessum andskotans terroristum þá get ég ekki flutt allt dótið mitt heim. Ég ætlaði að hafa ca 10 kíló í handfarangur.. en nei... ég má hafa passann í handfarangur.. og seðlaveski ef ég verð. punktur og hafa það í glærum plastpoka svo það sjáist hvað ég er með!!!!!!!

ég má hafa mín fokkings 20 kíló í tjekkinn-farangur.. kommon.. sjampóið og sápan eru 20 kíló for crying out loud. Ég mun skilja allavega eina 18 kg tösku hérna og það lítur út fyrir að ég þurfi að skilja meira eftir því það sem ég ætlaði að ferðast með í upphafi eru 45-55 kíló. Og beyglan hjá Icelandair vogaði sér að segja að e´g hafi ekki valið mér besta tímann fil að flytja.. fyrirgefðu kona að ég hafi ekki séð það koma fyrir ári síðan þegar ég pantaði miðann að e-r terroristaplebbar ætluðu að sprengja upp Bretland.. my bad. Sjitt.. ég veit ekki hvað ég á að gera.. ég er bara ógeðslega pirruð! og ég get ekki einu sinni klætt mig í heling af fötum því ég mun vera beðin að fara úr þeim á flugvellinum... Plís ef þið þekkið e-a sem eru að ferðast frá Glasgow til Íslands á mán , þrið eða miðvikudaginn plís látið mig vita og kannski tekst mér þá að redda nokkrum kílóum. Ég er alveg að tapa mér hérna. og eitt enn.. er ekki lika e-ð ákveðið sem ein taska má vega.. 32 kíló eða e-ð?? plís látið mig vita ef þið vitið það.. því ég er með eina sem er orðin 35 kíló og ég er ekki búin að pakka í hana!!

oohhh djöfull... á e-r flugvél sem hann getur bara sótt mig á???

knús og kram

Raven


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 08:13:21 / hrahel

Draslið sem fylgir manni!!!

Það er alveg ótrúlegt hvað það er mikið drasl sem fylgir manni hvert sem maður fer... ef ég vissi ekki betur.. þá mundi ég halda að ég væri búin að búa erlendis alla mína ævi... miðað við farangurinn... almáttugur minn. En ég læt það samt ekki stoppa mig í búðunum... oonei.. er á fullu að kaupa síðustu afmælisgjafirnar, sængurgjafirnar, og svo bara e-ð sem mér finnst fallegt;)

En þessi skoðanakönnun er held ég orðin úrelt... flestir vildu semsagt að ég kæmi í og í skól... e-r heim og vinna( hhmmm hver ætli það hafi verið?) en aðrir vildu bara að ég héldi mig í útlandinu.. og helst bara að fara e-ð ennþá lengra en Skotland... ég læt það þó ekki á mig fá og mæti tvíefld til lands fyrir vikið.

Ég fór í tæpa 14 klst hálandaferð á laugardaginn. Og það var nú ekkret lítið sem maður sá í þeirri ferð og allt sem maður lærði, sem ég býst við að ég gleymi mjög fljótlega, og allar sögurnar sem voru sagðar.. og þá sérstaklega um Rob Roy og William Wallace. Ég bara klikkaði á því að hafa aldrei séð Braveheart8| En það svo sem kom ekki að sök. Svo sáum við auðvitað helling á leiðinni upp í loch ness, m.a Stirling castle, Ben Nevis(stærsta fjall UK fyrir  áhugasama) Fullt af loch-um og köstulum og fallegri náttúru. Svo vorum við komin uppí Loch ness þar sem við skoðuðum rústir frá Urquhart castle sem var mjög flott og akkúrat þegar við komum var brúðkaup í gangi og brúðurin gekk rétt á undan okkur inní rústirnar.. mér leið mjög kjánalega eins og ég væri e-r hluti af þessu brúðkaupi... en ég varð að halda hópinn svo e´g mundi ekki týnast... En ég fór í siglingu um loch ness en sá enga Nessie.. en ég veit samt vel að hún er til og trúi því sko alveg. Þessi ferð var bara mjög skemmtileg.. en mjög löng... sá ca 7 castala og 10 loch.

Það er núna ekki hægt að þverfóta fyrir fólki í borginni útaf hátíðinni.... náttúrulega endalaust margir gestir og svo eru líka skrilljón listamenn svo maður er tölvuert lengur að ganga aðalgötuna núna heldur en vanalega... en það er bara gaman því ég hef svo sem ekki mikið annað að gera. Nema þá að leggja kapal sem er það asem ég geri daginn út og inn.. er kapalÓÐ mig dreymdi allt í kapli um daginn.. án gríns. það var scary.

Veðrið hefur ekki veirð neitt spes núna síðustu daga.. mikið rok komið og stundum dropar aðeins niður. Veit ekki alveg hvað ég geri í dag.. fer líklegast í Costco með myndirnar okkar Holy tæplega 500stk takk fyrir og svo kannski í bíó með sætabolluna mína. Sem sagði svo yndislegt um daginn.. Við erum mikið búin að tala um að það ég sé að fara og að ný aupair að koma svona til að undirbúa orminn og hann er nú ekki alveg nógu glaður með það greyið. og Finnst 7 dagar sko ekki mikið:evil: En svo vorum við e-ð að ræða málin um daginn.. og hann spyr mig hvort ég sé skotin í honum.. ég segist vera MJÖG skotin í honum. Hann spyr hvort ég vildi að e´g væri 5 ára, og ég svara að e´g vildi að e´g væri 5 ára svo að þegar við yrðum stór værum við jafn gömul og þa´gætum við gifst... þá segir okkar maður.. nnnneeeeiiiiii það er ekki hægt að giftast þann sem er í manns family :klikk: ooohhh sætabolla.. ég gat ekki annað en bara verið sammála því.

jæja núna er ég búin að skrifa ansi mikið.. fjúff... vonandi drap ég engan úr leiðindum.. og ef það gerðist þá vona ég bara að það hafi verið 2 manneskjur.. ekki fleiri.

knús og kram

Raven

og já.. sjáumst eftir 6


» 7 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 08:30:51 / hrahel

dos semanas!!!

I dag eru akkúrat 2 vikur í heimkomu... júbbí;)

En varðandi undirbúninginn fyrir húsmóður heimsins keppnina.. þá held ég að þið hinar sem ætlið að keppast um þetta með mér getið bara alveg eins hætt og gefist upp. þið eigið ekki roð í mig... Þannig er að síðasta föstudag fór ég að tína ber. Jarðaber og hindber og svona. Svo fór laugardagurinn bara í það(eftir smá verslun;)) að búa til sultur. jájá og skrilljón sultukrukkur voru fylltar takk fyrir.

Núna bara kominn ágúst... for crying out loud hvað þetta er fljótt að líða. það er ekki eðlilegt. En það þýðir að festivalið er byrjað. Edinborgar hátíðin er ein stærsta mennignarhátíð í heimi og alltaf nóg að gera á hverjum degi og kvöldi. Maður þarf bara að fylgjast vel með dagskránni til að vita hvert maður á að fara því þessu er dreift útum alla borg. Svo endar hún á svaka flottri flugeldasýningu uppí kastala í takt við sinfoníutónlist.. ég sá það í fyrra og það var mjög flott... en ég missi af því núna. Því ég verð á ÍSLANDI:)

Ef að þið hafið ekki tekið eftir því þá er hún Guðný Pétursdóttir komin til landsins og ég hvet alla til að fara uppí búðina hennar.... innrömmunarbúðarvinnan.. hhmm í e-m múlanum minnir mig.. allavega finnið það bara og heilsið uppá hana.. hún er met.

Mig langar voða að sjá þessa Footloose sýningu. Eru kanksi allir búnir að sjá hana??? er e-r game í skemmtikvöld.. leikhús og svokannksi drykkur á eftir eða e-ð svoleiðis... what say u???

Knús og kram

Raven


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.07.2006 21:01:30 / hrahel

18 dagar

Eftir 18 daga fæ ég LOKSINS að sjá þessa sætustubollu...

 

Er hægt að vera sætari.. og stærri??? þvílíkt sem kroppurinn er búinn að stækka á smá tíma8|

Allavega þá er það í fréttum af mér að familían kom heim í gær.. og auðvitað fékk ég minn Bingo kúlupoka, það er ekki að spurja að því... Ingibjörg með þetta allt á hreinu. En það var bara voða gaman að hitta þau og auðvitað mest hann Kjartann sæta.. ég saknaði hans nú bara helling meðan þau voru heima.. hann er svo mikil rófa. En ég nýtti fríið í ýmislegt annað en veikindi. t.d fór ég með henni Birnu og dóttur hennar í safari-park sem er rétt fyrir utan Sterling og keyrði þar um  á milli ljóna tígrisdýra, gírafa, fíla, cameldýra, úlfalda og alls konar dýra sem maður sér ekki í fjölskyldu- og húsdýragarðinum.., það var bara ansi skemmtilegt og gaman að sjá þessi dýr öll. Það var alveg sjúklega heitt svo við vorum alveg að kafna í bílnum.. því við neyddumst til að hafa lokaða glugga stöku sinnum því ljónin komu alveg upp að glugganum, þegar þau gerðu sig líkleg til að drepa e-n fugl.... en þá kom e-r vörður og stoppaði leikinn. Ég er ekki ennþá farin í hálandaferðina... en stefni á að gera það yfir versló-helgina.

Síðustu daga hef ég bara verið að versla ansi mikið.... gera svona last minute shopping(því ég er alveg að fara heim) og kaupa ýmislegt sem mig vantar, og annað sem mig vantar nú ekkert svo en langar í ;) alltaf gaman að kaupa svoleiðis:) keypti t.d myndaamlbúm í dag til að hafa allr myndir reddí fyrir gesti og gangandi;)

Svo er ég líka bara búin að vera að skipuleggja heimkomu.. því eins og flestir vita að þá er þetta heljarinnar viðburður... þetta er nú einu sinni ég sem er að koma.... Ása sætabolla ætlar að vera svo elskuleg og sækja mig á Leibba svo að ég nái nú örugglega klipputímanum mínum:)

Knús og kram og sjáumst eftir 18 DAGA

Raven


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 00:56:20 / hrahel

Nú er ég orðlaus...

gerist voða sjaldan.. enjoy the moment.

Ég vissi ekki að það væri til svona líka með yfirburðum heimskt fólk. Það á að taka þessar bölvuðu barnalands beljur (bbb flokkurinn) og læsa þær inni.... hvenig er hægt að vera svona heimskur.. og að auglýsa heimskuna sína á netinu...O so help them god

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=178864

skoðið þetta í alvöru..

knús og kram

Raven


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.07.2006 22:25:25 / hrahel

vá æðislegt frí...:-S

ég gæti nú bara haft sama titil á þessari færslu eins og síðustu.. bara í annari meiningu:(

O well, ég er búin að hafa 12 mánuði til að verða veik.. en aldrie ákveðið að gera það.... fyrr en í einustu frívikunni minni. jájá.... ég semsagt fór yfir til galsgow í dag.. ætlaði að fá smá fjölbreytni í lífið.. fór yfir og verslaði smá.. svo var mér farið að líða svolítið skringilega, orðið e-ð óglatt og vibbó.. þannig að ég ákeð bara að pilla me´r aftur til Edin.. nema hvað í lestinni þá bara byrja ég að svitna þvílíkt köldum svita og við það að æla á manninn hliðiná mér, en ákveð frekar að detta á hann, jájá það leið næstum yfir mig og ég missti svona lappirnar undan mér og datt á e-n gaur.. vel gert Hrafnhildur. Svo dreif ég mig bara heim og þar byrjaði ballið.. er búin að vera á ælunni síðan ég kom og bara e-ð að lúðast uppí sófa með hita:S.

Svo er ég líka e-ð mega emotional þessa dagana..( guð mætti halda að ég væri ólétt) græt yfir öllu í tv-inu... auglýsingum for crying out loud.. svo var ég líka að frétta það að hún Rósa vinkona og Jói voru að eignast litla prinsessu sem lét heldur betur bíða eftir sér, og þá auðvitað hágrét ég líka. hahahah ég er ekki alveg í lagi. En ég vil óska þeim innilega til lukku með skvísuna!!!!

En ég fór til glasgow til að kaupa allar afmælisgjafirnar sem ég þarf að kaupa áður en ég kem heim... og ég keypti ekki eina... keypti bara e-ð dót fyrir mig.. haha góð Raven. Hitt verður bara að bíða betri.

Ég er að horfa á e-ð 50 boyband classics.. og ég byrjaði að horfa í 26.. og e´g get svo svarið það e´g kann hvert einasta lag sem er í top 25.. er það eðlilegt?? ég bara spyr. Habbý var nefninlega e-ð að nefna það um daginn að það væri bara uppeldisskortur að ég vissi ekki hver alfred hitchcock væri8| kannski hef e´g bara veirð of upptekin í boyböndunum til að taka eftir þessum gamla Alla...

Til hamingju með afmælið Ninna sætabolla eftir 35 mínútur... í skotlandi

knús og kram

Raven


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 20:01:29 / hrahel

Hiti og sviti!

Vá, það er búið að vera alveg sjúklega gott veður hérna alveg síðan á föstudag.. í dag var alveg heiðskýrt, blankalogn og 31 stiga hiti. Og á morgun á að verða ennþá betra.. 34 gráður og record brake!! jamm hafið það bara gott þarna uppi:lol:

En helgin mín var bara alveg ágæt.... var bar aí slökun á laugardeginum.. verlsaði smá og var svo bara í sólbaði. Svo á sunnudeginum komu Helga og co yfir og við fórum aðeins á ströndina og hittum þar fleiri góða og svo útað borða um kvöldið. s.s Helga, Kjarri, Hjálmar, Gulla, Halli, Eggert, Emmi og ég. Og hver haldiði að hafi verið þjónninn okkar... enginn annar er gordjöss barþjónninn minn sem gerir góða toblerone kokteilinn.. muniði ekki stelpur.. oohh sætisæti.. En þetta kvöld var bara mjög skemmtilegt og gaman að hitta alla;)

Svo er ég komin í frí núna... very nice. Familían fer til Íslands í fyrramálið og ég verð þá bara ein eftir... svo ef það vill e-r koma til mín í viku.. frá miðv. til miðv þá er það velkomið og kostar ekki nema 26,500 með töxum. Endilega skellið ykkur:)

Annars er bara alltaf sama spennan að koma sjálf... og aðalspennan að fara í klippingu.. :) er búin að panta mér tíma.. svo Nanna frænka verður sú fyrsta sem fær að hitta mig á klakanum:) ég læt ekki sjá mig svona, eins mikill hroðbjóður og ég er þessa stundina.

O well... nú er ég hætt

Knús og kram

Raven


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 17:10:27 / hrahel

Júní

nýjar myndir.....

júní

www.fotki.com/hrahel18

knús og kram

Raven


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 19:54:25 / hrahel

ohhh ég er brjáluð!!!

oohh hvað ég er pirruð...

helvítis er búið að breyta landsleiknum við spán svo hann er 15. ekki 16. .... HALLÓ vita þeir ekki að ég kem heim 16.ágúst??? og þá verður aðeins of seint að mæta á völlinn:( oojj bara ýkt mikið bögg...

en já semsagt.. komin með flug heim 16.ágúst... og ekki sátt með þessar breytingar.

knús og kram

Raven


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 13:14:35 / hrahel

Durex

Ég átti einu sinni dúkku. Það var strákadúkka sem ég fékk í jólagjöf þegar ég bjó á Lindarbrautinni svo ég giska á að ég hafi verið 5 eða 6 ára. Dúkkan fékk strax nafnið Durex, jájá ég er ekkert að grínast. Og þar sem að ég var lítil og vitlaus vissi ég ekkert til þess að Durex gæti verið e-ð annað en fallegt nafn á dúkkuna mína. Nafnið festist strax við hann og hann var orðin hluti af fjölskyldunni med det samme. Það fannst öllum alltaf voða fyndið þegar ég sagði þeim hvað dúkkan mín hét og hlógu sig máttlaus en ég gat aldrei séð hvað var svona fyndið við það.. og ekki datt nokkrum manni í hug að segja mér hvað það væri. Svo ekki leið á löngu þar til að ég var beðin um að segja öllum sem á vegi mínum urðu hvað dúkkan mín sæta hét. Ég man að ég fór í sund í neslaugina og frænka mín sagði skellihlægjandi " Hrafnhildur, segðu henni(vinkonu sinni) hvað dúkkan þín heitir.. hún trúir mér ekki hahahahaha" voða fyndið a-ð að gera grín að litlu frænku sinni. En hann Durex var sko fræg dúkka. Hann var svo sætur og með útstæðan nafla alveg eins og ég svo við skildum hvort annað og greyið var aldrei í fötum.. alltaf alveg ber. Flestir nesbúar vissu hver hann var og svo fór hann mjög oft með pabba í vinnuna í lögguskólann því pabbi þurfti að nota hann við kennslu.. veit ekki hvort það var dúkkan eða nafnið sem hann studdist við og ég mun líklegast aldrei komast að því. Ég sakna hans Durex og vildi óska þess að hann væri ekki týndur.. og ég hef hann grunaðan um að vera í geymslu í lögguskólanum...:cry: en vonandi kemst hann í leitirnar.. svo ég bið ykkur fólk um að hafa augun opin fyrir allsberum Durex, I love him

Svona var hann Durex minn... bara ekki eins á litinn, hann var eins og ég á litinn

Annars er það að frétta að ég fór áðan og lét framkalla 300 myndir, frá október til júní. Og ég fékk ekki venjulega stærð af myndum heldur e-ð hugo largo, hugsa að það sé fáfræði minni að kenna..., svo þær passa ekki í myndaalbúm svo ég þarf að kaupa e-ð svona tæknilegt albúm sem maður föndrar og e-n fjandann... Svo öll andlit eru voða stór og allt sést mjög vel.. mér til mikillar mæðu þar sem það er óhætt að segja að ég er algjör vibba hroðbjóður á mjög mörgum þessara mynda...

o well.. Línus og mamma eru á leiðinni.. best að búa til te og baka eins og nokkrar muffins.

knús og kram

Raven

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10